Leikir ÍBV heima og heiman LIVE
30.4.2012 | 22:40
Nú er rétt um vika í að fyrsti leikur ÍBV fari fram í PEPSI deild karla, mótherjarnir eru SELFOSS og er leikurinn á sunnudaginn kemur kl 18:00 á heimavelli Selfoss. Heimasíðan IBVFAN.com hefur unnið að því öturlega að koma á lýsingum á leikum ÍBV núna undanfarna mánuði og er allt að smella saman og er komið á hreint að allir leikir íbv bæði heiman og heima verða beint á netinu það er að segja á heimasíðunni IBVFAN.com og á sportradio.is. Heimaleikum verður lýst af eyjamanninum Gauja Sidda sem allir þekkja nú betur sem DJ gaui og mun hann sjá um að eyjamenn á fastalandinu fái að heyra hvað er að gerast í leikjunum á Hásteinsvelli í sumar. Sverrir Júll mun aftur á móti sjá um lýsingar frá öllum leikjum uppi á landi eins og hann hefur gert áður en útsendingar hófust sumarið 2007 þegar ÍBV var í 1.deild og var öllum leikjum ÍBV lýst það árið en þá sama ár voru Trommuheilarnir stofnaðir af Emma, Benno, Gauja Sidd,Óskari og Sverri Júll sem breyttist síðar í stuðningsmannahópinn IBVFAN. Fyrsta útsendinginn er núna sunnudaginn 6.mai og er það Selfoss vs ÍBV á Selfossvelli og hefst útsending kl 17:40. ÍBVfan er með twitter síðu ( twitter.com/ibvfan ) og (facebook.com/ibvfan ) og blogg sem er blogg.is/ibvfan.Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jólarásin í Loftinu núna ( LIVE )
9.12.2011 | 13:58
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Viðeigandi að varðskipið ÞÓR leggi að í eyjum
26.10.2011 | 14:41
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leikur FH og ÍBV beint á netinu
25.9.2011 | 16:04
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
FH vs ÍBV
22.9.2011 | 11:31
Strákarnir fara í Kapplakrika á sunnudaginn og leika gegn FH kl. 16:00.
FH er án Péturs Viðarssonar og Björns Daníels, en þeir taka út leikbann. Hjá ÍBV eru Brynjar Gauti og Þórarinn Ingi í leikbanni.
Þetta er næst síðasti leikur sumarsins og jafnframt síðasti útileikur sumarsins. Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að mæta og gera allt vitlaust!
Leiknum verður lýst beint hér á síðunni og á facebook einnig verður hægt að hlusta á www.ibvfan.com
ÁFRAM ÍBV!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áhorfendastúka við Hásteinsvöll
6.6.2011 | 01:25
Þeir eru fáir sem myndu mótmæla þeirri fullyrðingu að Hásteinsvöllur er einn besti knattspyrnuvöllur landsins. Völlurinn hefur verið sá besti á vorin undanfarin ár og sá völlur sem haldist hefur hvað best yfir sumarið. Stemmninginn á vellinum oft frábær og fræg íhaldssemi stuðningsmanna varðandi staðsetningu þeirra á vellinum fræg. Hólsarar eru frægir meðal knattspyrnuunnenda og enginn línuvörður í efstu deild kemst hjá því að heyra glósur frá þeim sem staðsetja sig hjá auglýsingaskiltunum sunnan megin. Og síðustu ár hafa áhorfendur sem sátu í brekkunni norðan megin tekið ástfóstri við ákveðin sæti í áhorfendastæðunum sem byggð voru fyrir Evrópuleik ÍBV fyrir nokkrum árum.
Hvers vegna þá þessi umræða um nýja stúku?
Það hefur legið fyrir í mörg ár að nauðsynlegt er að bæta aðstöðu fyrir áhorfendur á Hásteinsvelli. Mikið hefur verið lagt upp með það í leyfiskerfi KSÍ sem samþykkt hefur verið ár eftir ár á ársfundi sambandsins að bæta áhorfendaaðstöðu á völlum hér á landi. Við höfum séð félög bregðast við þessum auknu kröfum síðustu ár. Flest félög í efstu deild hafa nú staðist þær kröfur sem gerðar eru til félaga í fremstu röð hér á landi. Við sjáum myndarleg mannvirki við alla helstu velli hér á landi. ÍBV er aðili að KSÍ og því verður félagið að lúta þeim reglum sem sett eru af sambandinu.
Sitt sýnist hverjum um kröfurnar en eitt getum við ekki sagt og það er að þetta komi okkur á óvart. ÍBV hefur verið á undanþágu undanfarin ár en nú er ljóst að ef ekki verður bætt úr verður Hásteinsvöllur ekki heimavöllur ÍBV á næsta ári. Það er hægt að taka þá umræðu hvort sanngjarnt sé að KSÍ sé að setja þessar byrðar og kröfur á félög en það breytir ekki þeirri staðreynd að kröfurnar eru til staðar og Vestmannaeyjar hafa haft nokkur ár til að bregðast við en ekkert hefur gerst.
Það er þykkur doðrantur af reglum sem hvert félag þarf að uppfylla ár hvert til að fá keppnisleyfi hjá KSÍ. Reglur um vallarmál er aðeins einn kafli í þeirri bók. Frá lok síðasta tímabils hefur framkvæmdastjóri ásamt stjórn félagsins unnið að því að uppfylla þau skilyrði sem sett eru. Vallarmál er það eina sem stjórn félagsins hefur ekki í valdi sínu að uppfylla, enda völlurinn í eigu Vestmannaeyjabæjar.
KSÍ sýndi í verki síðasta sumar að sambandið ætlar sér að framfylgja þessum reglum. Lið Hauka var gert að spila sína heimaleiki á öðrum velli en sínum eigin þar sem sú aðstaða sem í boði var á Ásvöllum þótti ekki nægjanlega góð fyrir leiki í efstu deild. Það liggur fyrir að ÍBV fékk undanþágu út þetta tímabil en til þess að félagið geti spilað áfram hér í Eyjum á næsta tímabili þarf að liggja fyrir og byrjað á stúkubyggingu sem uppfyllir þau skilyrði sem sett eru. Stúkan þarf að hýsa 750 áhorfendur og helmingurinn af því þarf að vera með þaki.
Umræðan um ÍBV þarf að breytast hér í Eyjum. Það er ekki hægt að líta á ÍBV sem einhverja þiggjendur hér í bæ. ÍBV er einn öflugasti ferðaþjónustuaðili hér í bæ og hingað koma mörg þúsund manns ár hvert vegna viðburða sem félagið stendur fyrir. Ef ÍBV stæði ekki fyrir þessum viðburðum þá myndu margir hér í Eyjum missa af miklum tekjum. Hvort sem um er að ræða Þjóðhátíð, Shellmót, Pæjumót, þrettándagleði eða túrneringar yngri flokka. Í raun væri nauðsynlegt fyrir félagið að láta vinna úttekt um áhrif ÍBV í þessum efnum hér í bæ eins og stóð til fyrir nokkrum árum en ekkert varð úr.
ÍBV er mikilvægur hlekkur í því bæjarfélagi sem við búum í. Ég efast um að mörg félög hér á landi hafi eins mikil áhrif á sitt nærsvæði eins og ÍBV. Þess vegna verður að nálgast umræðu um félagið og nauðsynlegar umbætur í kringum svæðið á þeim nótum.
Með tilkomu Landeyjahafnar sem við vonum að verði farsæl samgöngubót þegar fram í sækir má búast við að fleiri áhorfendur fylgi aðkomuliðinu á hvern leik á Hásteinsvelli. Það er lyftistöng, ekki bara fyrir ÍBV heldur bæjarfélagið í heild sinni.
Spyrjum okkur því hvernig við getum leyst málið. Hvernig getum við uppfyllt þau skilyrði sem sett eru. Á að ráðast í nýja stúku sunnan megin við völlinn og fara þá í svipaða byggingu og nágrannar okkar á Selfossi gerðu? Með búningsaðstöðu undir stúkunni. Eða byggja við og yfir hluta af áhorfendastæðunum norðan megin? Lykilatriðið í því hlýtur að vera að leysa málið til frambúðar. Ekki tjalda til einnar nætur í þessum efnum.
Sigursveinn
Fengið af heimasíðu www.ibvsport.is
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Valur vs ÍBV í kvöld kl 20:00 ( til hamingju með daginn Valsarar )
11.5.2011 | 15:10
Eyjamenn sækja í kvöld topplið Vals heim að Hlíðarenda. Valsmenn hafa farið vel af stað í sumar, hafa unnið tvo fyrstu leiki sína og eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. ÍBV er hins vegar 5. til 9. sæti með þrjú stig eins og Þór, Grindavík, Fylkir og FH. Ian Jeffs er meiddur og ólíklegt að hann verði með auk þess sem Finnur Ólafsson er enn meiddur. Hins veger má Bryan Hughes spila með ÍBV en leikheimild fyrir hann barst í gær.
Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður í beinni útsendingu í Höllinni.
Stuðningsmenn ÍBV ætla að blása í herlúðra fyrir leik liðsins gegn Val í kvöld. Leikurinn er hluti af afmælishátíð Vals og verður því hörkustemmning á vellinum. Stuðningsmenn ÍBV ætla því að hittast á Spot í Kópavogi kl. 18:00 og hita vel upp fyrir leikinn.
20% afsláttur af leikjamatseðli og kaldur á tilboði.
Heimir Hallgrímsson þjálfari mætir og kynnir liðið kl. 18:30. Leikurinn hefst síðan kl. 20:00 á Vodafonevellinum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Næsta barátta í dag kl 16:00 ÍBV vs Fylkir
7.5.2011 | 11:38
Eftir gæsahúð úr leiknum á móti Fram tekur við nýtt verkefni hjá strákunum.
Óli Þórðar og lærisveinar hans í Fylki heimsækja eyjuna fögru í dag Laugardag kl 16:00.
Það er alveg hægt að lofa báráttu þegar strákarnir spila við Fylki, Óli hefur látið Fylkisstrákana gera djúpar hnébeygjur og ekki hikað við útihlaupin í vetur, þannig það verður gríðalegur erfiður leikur sem bíður okkar manna.
Fylkismenn mæta særðir eftir síðasta leik, þar sem þeir glutruðu niður 2-0 stöðu í seinni hálfleik, þannig þeir mæta með blóð á tönnum á Hásteinsvöll
Það er spurning hvar Tryggvi verður á 93 mín á laugardaginn, eða hvort að Eiður lúrir fyrir utan teig.
Það vill engin missa af næsta leik hjá strákunum, þannig ekki láta þig vanta
Gameday hjá strákunum.. Allir á völlinn klukkan 16.00. ÍBV - Fylkir má búast við góðri mætingu í dag :)
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er fjör í boltanum og mistök hjá fréttamönnum.
3.5.2011 | 00:07
Núna í dag hófst formlega PEPSI deldinn og eyjamenn byrja þetta vel . Í tilefni þessarar knattspyrnuveislu er hér nokkur brot úr lýsingum íslenskra íþróttafréttamanna á knattspyrnuleikjum.
Logi Ólafs: Real Madrid - Juventus "Það hefur komið í ljós að ef þú vilt skora mark þá er betra að hitta á rammann fyrst."
"Knattspyrnustjóri liðsins, Howard Wilkinson, er ekki á vellinum í dag, sem bendir sterklega til þess að hann gæti verið annarsstaðar"
"Ég trúi því statt og stöðugt að ef annað liðið skorar mark þurfi hitt að skora tvö til að vinna"
"Það er ekki nokkur leið að geta talið allan þann fjölda sendinga sem þarna gekk á milli manna, en þær voru átta"
"Þarna er Chadwick hann er efnilegur strákurinn, sjáið hann hann hefði getað verið í Bee Gees allavega á miðað við "TANNGARÐINN" "
"Leiknum verður sjónvarpað í sjónvarpinu"
"Við erum stödd á leik FH og Hauka í Hafnarfirði og það eru Hafnfirðingar sem eru með boltann."
"Staðan markalaus, hvorugu liðinu hefur tekist að skora mark, núll núll, Liverpool núll Arsenal núll." búinn að ná þessu? ;)
Guðmundur Hreiðarsson:"Hann ver þetta eins og handboltamarkvörður en vel engu að síður."
Heimir Karlsson var með Martein Geirsson í getraunahorni á Stöð 2:
Heimir: Þú hefur lent í slæmum meiðslum Marteinn ?
Teini: Já ég hef slitið krossböndin 2 sinnum............(og svo hélt hann langa ræðu um meiðsli sín).
Heimir: Snúum okkur þá að öðru Marteinn. Hvernig ertu í tippinu?
Gaupi að lýsa KR leik: "Olga með boltann og gerir mjög vel en hún hefur oft verið kölluð hin íslenski Gerd Muller".
"Velkomin aftur, en þá er það seinni hálfleikurinn í Arsenal - Chelsea en staðan er 0-1 fyrir Tottenham"
"Þið megið ekki gleyma bæði lið vilja vinna þennan leik!" semsagt ekki verið að spila sér til gamans?
"Þetta er skrítin uppstilling hjá þjálfaranum. Hann lætur byrjunarliðið byrja út af. "
"Og á 76. mínútu tekur Alan Shearer við sér og skorar tvö mörk og tekur ekkert aukalega fyrir það "
"Nicky Butt hefur löngum verið talinn furðulegur í framan...eins og allt lið Manchester United"
Logi Ólafsson: "Þarna kemur rauðhærður niggari inná".
Valtýr Björn: "þeir eru með bandarískan ameríkana""það er hellingur af fullt af fólki"
"Þetta er svartur svertingi""Nú er það svart, það er ljóst"
Arnar Björnsson, Fram og KR. : "Bæði liðin hafa nú leikið í tuttugu og eina mínútu". en ekki hvað? :
Bjarni Fel: "Þá eru þeir kókaínbræður Maradona og Caniggia báðir farnir úr liði Argentínu"
Bjarni Fel EM 96: "Pavel Kuka er með boltann. Kuka kemur.. kuka dettur niður... og Kuka...skýtur...en Kuka skaut honum rétt yfir"
Hemmi Gunn á án efa skemmtilegustu lýsingu síðustu aldar þó svo að honum hafi verið "skipt útaf" í hálfleik einhverra hluta vegna. Hann var að lýsa leik Inter og Juve í Ítölsku deildinni og þegar komið var undir lok fyrri hálfleiks bað hann áhorfendur vinsamlegast að skipta um stöð því leikurinn væri svo leiðinlegur.
Úr sama leik:
"SKOT....í stöngina....hvað var stöngin að gera þarna"
"þarna sjáum við Marcelo Lippi...hann er ennþá í sama frakkanum og fyrir 3 árum síðan"
"Gianluga Paliuga veit sko alveg af hverju hann er markmaður hjá Inter"
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eyjamenn sigra Fram í uppbótartíma.
2.5.2011 | 20:04
Íþróttir | Breytt 3.5.2011 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


